22.10.2008 | 18:41
Ég er í krúttkasti
Yfir deginum í dag:) Brunaði í bæinn og fékk krúttbifvélavirkjann minn til að græja bílinn, laga og koma í gegnum skoðun, fékk krútt 09 miða loksins á bílinn minn, sem hefur eiginlega verið á grænum miða í tvö ár ! Á meðan var krútt systir mín, Ása einkabílstjóri minn, og skutlaði mér í gömlu vinnuna þar sem ég hitti gömlu krútt vinnufélagana mína, og það var ekkert smá krúttlegt, fékk krútt í hjartað bara:)
Þar á eftir hitti ég krútt Magga minn, sem fór með okkur að snarla, og hann þetta elsku krútt, lét falla þessu fallegu orð falla í móðureyrað, "ég hefði nú alveg viljað fá fallegu bláu augun þín" ! Mamman fékk bara tár í bláu augun:)
Og svo eftir annasaman dag og ég á leið aftur vestur, (lesist heim ), var ekki ein af uppáhaldspoppstjörnunum minum Páll Óskar í viðtali með ægilega flottan krútt boðskap, ég bara lagði í vegkantinn til að hlusta á þennan dásamlega dreng.
Að lokum þessa krúttdags, kom ég heim þar sem litlu krúttin mín komu fagnandi á móti mömmu sinni, spennt hvort mamman mundi nú gauka einhverju að þeim eftir kaupstaðarferð, sem hún og gerði og fékk krútt kossa og krútt faðmlag fyrir vikið:)
Svo að lokum ætla ég nú bara að trúa því að ég sé bara dáldið krúttleg.... Farin að krúttast....
Athugasemdir
Mér hlýnaði um hjartaræturnar að lesa þennan pistil. Það eru góðir svona dagar.
Kolla (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 21:53
Whenever I Call You Friend
Sponninn (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 00:18
Til hamingju mín krúttlega gella með þinn krúttlega kagga. Kanski að ég plati þig til að fara með Kiuna mína í skoðun,,,,, ég reyndi að mæta í stuttu pilsi og nærum með streing..... en gekk ekki neitt.
Sponninn (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 00:21
Heheh ....Jonni, málið var að ég grátbað bifvélavirkjann að fara með hann í skoðun fyrir mig, hafði bara ekki taugar í að renna honum þar í gegn og fá kannski einn grænan í viðbót.... þannig að mýtan með stutta pilsið gengur ekki, veit reyndar ekki um nærurnar með strenginn......ég var nú bara í slogginu....
Pálína (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 12:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.